Eignaumsjón
Eignaskrá heldur utan um tölvur, síma, skjái og annan búnað — þvert á öll félög í samstæðunni. Eitt kerfi, hvert félag með sína kennitölu og sín gögn.
Ekkert kort. Þú getur flutt gögnin þín út hvenær sem er.
Fartölva Önnu
Dell Latitude 5540
Kvittun undirrituð
Anna Jónsdóttir · 14.03.2026
Vandamálið
Flest fyrirtæki halda utan um búnaðinn sinn í töflureikni sem einn maður uppfærir þegar hann man eftir því. Svo hættir starfsmaður og enginn veit hvort hann var með fartölvu, hvaða fartölvu, eða hvort henni var skilað. Endurskoðandinn spyr um afskriftir og svarið er ágiskun.
Eiginleikar
Flest eignakerfi gera ráð fyrir einu fyrirtæki. Íslenskur rekstur er sjaldnast þannig.
Hvert félag með sína kennitölu, sinn tengilið og sínar eignir — en heildarmyndin á einum stað.
Bókarinn sér sitt félag, UT-stjórinn sér öll. Enginn þarf að reka aðskilin kerfi.
Starfsmaðurinn skannar QR-kóða, sér hvað hann er að taka við og skrifar undir í símanum.
Prentaðu límmiða á Avery-arkir eða Zebra-rúllu. Skannaðu og þú ert kominn í spjald tækisins.
Kaupverð, kaupdagur og afskriftatími per flokk. Tölur sem endurskoðandinn getur unnið með.
Starfsmenn sækjast úr Entra ID. Þegar aðgangi er lokað sérðu hvaða búnað á eftir að skila.
Innleiðing
Það erfiðasta við eignakerfi er að koma því sem er þegar í notkun inn í það. Eignaskrá gerir það í einni ferð um húsið.
Auðir límmiðar með ónotuðum eignanúmerum, tilbúnir á rúllu eða örk.
Límdu einn á hvert tæki og skannaðu strax. Skráningin opnast með númerið tilbúið.
Myndaðu framleiðandamiðann — kerfið les gerð og raðnúmer og fyllir inn.
Verð
Allir pakkar með 14 daga prufu. Verð án vsk.
Fyrir minni fyrirtæki með einn rekstraraðila.
4.900 kr. / mán.
+ 1.900 kr. fyrir hvert félag umfram 1
Fyrir samstæður með nokkur félög undir sama hatti.
12.900 kr. / mán.
+ 1.900 kr. fyrir hvert félag umfram 3
Fyrir stærri rekstur með mörg félög og útibú.
29.900 kr. / mán.